Landspítali er á hættustigi
Í dag liggja 22 vegna COVID á Landspítala, þar af eru 17 í einangrun. Í gær lögðust þrír inn eftir skoðun í COVID göngudeild og einn inniliggjandi sjúklingur greindist í reglubundinni skimun.
13 eru á smitsjúkdómadeild og þrír á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél.
1.729 eru í eftirliti, þar af 560 börn, 82 eru gulir, enginn rauður.
54 starfsmenn eru frá vinnu vegna einangrunar (27) og sóttkvíar (27). Þá eru 131 starfsmaður í vinnusóttkví.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.
Geðendurhæfingardeildin á Kleppi er í sóttkví og þar er lokað fyrir innlagnir á meðan verið er að rekja í kringum sjúkling sem greindist í gær við reglubundna skimun. Þeir starfsmenn sem hafa komið á deildina í einhverjum erindagjörðum frá því á föstudag og hafa ekki fengið sent strikamerki fyrir sýnatöku eru beðnir um að hafa samband við rakningarteymi spítalans á netfangið rakning@landspitali.is.
Átta sjúklingar eru í sóttkví en þeir skiluðu allir neikvæðum sýnum í gær. Í dag eru víðtækar skimanir hjá starfsmönnum.
Deild í sóttkví þarf að takmarka umgang eins og mögulegt er. Öll óþarfa umferð er bönnuð en allt sem er nauðsynlegt að gera er heimilt með notkun viðeigandi hlífðarbúnaðar.