Í dag liggja 22 sjúklingar á Landspítala með COVID. 17 eru með virkt smit og í einangrun en 5 eru útskrifaðir á aðrar deildir. Fjórir einstaklingar eru á gjörgæslu og þrír þeirra í öndunarvél.
1.616 eru í símaeftirliti á Birkiborg, þar af 525 börn. Á gulu eru 135 einstaklingar – enginn á rauðu. Í gær komu 11 einstaklingar til mats og meðferðar á göngudeildinni og þrír lögðust inn.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.
- Í gær greindist inniliggjandi sjúklingur á smitsjúkdómadeild með ómíkron afbrigði SARS-CoV2 veirunnar. Viðkomandi var lagður inn á Landspítala frá heilbrigðisstofnun utan höfuðborgarsvæðisins vegna þess að hann greindist með COVID. Síðdegis í gær kom í ljós að um þetta afbrigði er að ræða. Uppruni smitsins er ekki ljós en rakningarteymi Almannavarna hefur rakið smitið og eru fleiri sýni í vinnslu. Viðkomandi sjúklingur er karlmaður á áttræðisaldri sem er fullbólusettur og hefur fengið örvunarskammt.
- Geðendurhæfingardeildin á Kleppi er laus úr sóttkví. Ekki greindust fleiri smit þar (einn sjúklingur og einn starfsmaður) og á starfsfólk deildarinnar heiður skilinn fyrir frábæra frammistöðu í sóttvörnum.