Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala frá 15. desember 2021
Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala á hættustigi í desember 2021
- Grímuskylda er hjá öllum starfsmönnum, heimsóknargestum, ferlisjúklingum og sjúklingum legudeilda sem fara út af deild í rannsóknir/meðferð. Á bráðamóttöku í Fossvogi eru notaðar fínagnagrímur við sjúklingaumönnun.
- Nándarmörk eru 1 metri nema ef gríma er tekin niður í neysluhléi, þá 2 metrar.
- Heimsóknir eru takmarkaðar á spítalanum. Einn gestur getur komið á degi hverjum til hvers sjúklings á skilgreindum heimsóknartíma. Undanþágur eru gerðar í samráði við stjórnendur viðkomandi deilda.
- Sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknardeildir í viðtöl/rannsókn/meðferð eiga ekki að hafa með sér fylgdarmann nema það sé algjörlega nauðsynlegt.
- Fundir starfsmanna sem taldir eru mikilvægir eru heimilir með því að ekki séu fleiri í rýminu en sem svarar 60% af uppgefnum leyfilegum fjölda, allir séu með grímu, gangi beint til sætis og beint þaðan út aftur. Starfsmenn leggi á minnið hverjir sátu næst honum. Eindregið ráðlagt frá því að bera fram veitingar. Starfsfólk í sóttkví C á ekki að sækja fundi.
- Bólusettir starfsmenn og starfsmenn með staðfesta fyrri COVID sýkingu (eldri en 180 daga) sem koma yfir landamæri þurfa að fara í PCR próf á flugvellinum, skrá sig í sóttkví C á vefnum og fara í annað PCR próf eftir 5 daga (panta sjálfir í Heilsuveru). Þeir sem ekki mæta í seinni sýnatöku fá áminningu í sms, ef því er ekki sinnt er haft samband við yfirmann viðkomandi. Þeir sem hafa fengið COVID fyrir meira en 14 dögum og minna en 180 dögum eru undanþegnir sýnatöku á landamærum og sóttkví C innan Landspítala.
- Óbólusettir starfsmenn sem koma yfir landamæri sæta fimm daga heimasóttkví með tveimur sýnatökum.
- Ef heimilismaður á heimili bólusetts starfsmanns er í sóttkví getur starfsmaður sótt um heimild til að starfa í sóttkví C á meðan sóttkví á heimili varir (ef ekki er hægt að halda algjörum aðskilnaði).
- Ef heimilismaður á heimili bólusetts starfsmanns er í smitgát þá þarf ekki sérstakar ráðstafanir utan venjulegrar aðgæslu.
- Ef starfsmanni Landspítala er boðið að skrá sig í smitgát vegna minni háttar útsetningar á hann þess í stað að hafa samband við farsóttanefnd sem skipar viðkomandi í sóttkví C með PCR prófum á 4. og 7. degi eftir ætlaða útsetningu.
- Ef heimilismaður á heimili starfsmanns fer í einkennasýnatöku og er ekki í sóttkví þá má starfsmaður koma til vinnu en hann þarf að nota fínagnagrímu án ventils þar til niðurstaða liggur fyrir. Ef heimilismaður í sóttkví fer í einkennasýnatöku þá ber starfsmanni að vera heima þar til niðurstaða liggur fyrir.
- Um skimanir sjúklinga sem leggjast inn eru inniliggjandi eða flytjast milli stofnana gilda sérstakar reglur – sjá hér
In English