Landspítali er á hættustigi.
Samkvæmt skilgreiningu er hættustig þegar orðinn atburður kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki.
Staðan kl. 9:00
12 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 58 ár. Tveir eru á gjörgæslu, annar þeirra í öndunarvél.
2.035 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 718 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 235 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.