Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
21 sjúklingur liggur á Landspítala vegna COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 60 ár. Sex eru á gjörgæslu, fimm þeirra í öndunarvél.
5.834 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 1.262 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 256 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.