Landspítali er á neyðarstigi
Í dag liggja 19 sjúklingar á Landspítala vegna COVID. 16 eru í einangrun, 3 eru að glíma við eftirköst. Sex sjúklingar liggja á gjörgæsludeild, fimm eru í öndunarvél.
Í gær greindist einn sjúklingur til viðbótar á hjartadeild en þeir eru orðnir níu alls. Allir aðrir COVID smitaðir á hjartadeild hafa verið fluttir annað eða útskrifaðir. Deildin verður opnuð fyrir innlagnir í dag en heimsóknir verða ekki leyfðar um áramótin þar sem ekki er séð fyrir endann á þessu máli. Starfsmenn þar munu nota fínagnagrímur fram yfir áramót.
Í fjarþjónustu COVID göngudeildar eru nú 6.403, þar af 1.373 börn. 228 eru gulir og 2 rauðir. Skoðunum (mat og meðferð) í COVID göngudeild fjölgar nú jafnt og þétt eins og búast má við. Allt kapp er lagt á að geta haldið þeirri þjónustu öflugri þar sem hún er meginþátturinn í því að fyrirbyggja innlagnir.
Mikið álag er á símaverið og er fólk sem ekki þarf þjónustu vegna veikinda vinsamlega beðið um að hringja ekki nema erindið geti alls ekki beðið. Allar upplýsingar um sóttkví og einangrun er að finna á covid.is.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.
Um bólusetningar
Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn hafa þungar áhyggjur af þeim hópi fólks sem ekki hefur látið bólusetja sig. Tölur um fjölda innlagna og alvarlegra veikinda meðal fólks í þessum hópi tala sínu máli. Frá upphafi 4. bylgju í sumar hafa 43% innlagna (110 einstaklingar) verið úr hópi óbólusettra sem telur um 27 þúsund manns á meðan 54% innlagna (140 einstaklingar) hafa komið úr hópi fullbólusettra sem eru nær 300 þúsund. Nú er svo komið að 5 af 6 sjúklingum á gjörgæslu eru óbólusettir.
Starfsfólk Landspítala biðlar til þeirra sem valið hafa að láta ekki bólusetja sig að endurskoða þá ákvörðun hið fyrsta; þeirra vegna, spítalans vegna og í þágu samfélagsins alls.
Um spálíkan Landspítala
Allt frá fyrstu bylgju Covid-19 faraldurs hefur Landspítali stuðst við spálíkan um álag af völdum Covid-19 við skipulagningu á þeim aðgerðum sem gripið er til. Þetta spálíkan hefur verið uppfært m.t.t. þeirra forsendna sem þekktar eru um hið nýja omikron afbrigði veirunnar og byggir á spá Thors Aspelund um fjölda smita í yfirstandandi bylgju. Spálíkanið metur álag á Covid göngudeild, legudeildir og gjörgæsludeildir auk þess að spá fyrir um fjölda smitaðra barna og fjölda sýna sem þarf að greina á sýkla- og veirufræðideild.
Forsendur núverandi spár gera ráð fyrir innlagnarhlutfalli upp á 0,7% sem er í samræmi við innlagnartíðni t.d. í Danmörku og Bretlandi. Að öðru leyti tekur líkanið mið af sögulegum gögnum spítalans ásamt aldri og bólusetningarstöðu smitaðra, m.a. til að meta legutíma og líkur á gjörgæsluinnlögn.
Þar sem yfirstandandi bylgja stefnir í umtalsvert fleiri smit en þekkist úr fyrri bylgjum má búast við töluverðu álagi á spítalann þrátt fyrir að innlagnarhlutfall sé lægra en í fyrri bylgjum. Strax upp úr áramótum má því gera ráð fyrir að 25 Covid sjúklingar verði á legudeild og átta á gjörgæslu. Ef ekki tekst að draga úr fjölda smita mun fjöldi inniliggjandi sjúklinga vaxa hratt og í kringum 10. janúar geta orðið allt að 60 Covid sjúklingar á legudeildum og 15 á gjörgæslu.
Ljóst er að hið nýja omikron afbrigði hegðar sér talsvert öðruvísi en fyrri afbrigði veirunnar. Þó svo að draga megi lærdóm af reynslu í öðrum löndum þá er enn ekki ljóst hver útkoman er miðað við aðstæður hér á landi, t.d. stöðu örvunarbólusetninga og eftirlit á göngudeild Covid. Meðan svo er þá er erfitt að spá fyrir um álag á heilbrigðiskerfið en núverandi spá gefur þó hugmynd um hver útkoman gæti orðið miðað við það sem vitað er um hegðun veirunnar í öðrum löndum.
Spálíkanið er samstarfsverkefni Landspítala, verkfræðideildar HÍ og Heilsugreindar. Vigdís Hallgrímsdóttir forstöðumaður krabbameinsþjónustu leiðir verkefnið af hálfu Landspítala.