Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
30 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 56 ár. Átta eru á gjörgæslu, fimm þeirra í öndunarvél.
Karlmaður á sjötugsaldri lést af völdum COVID-19 á Landspítala í gær.
8.511 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 1.961 barn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 285 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.