Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
39 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Sjö eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 64 ár.
Kona á níræðisaldri lést á Landspítala í gær af völdum COVID-19.
8.521 sjúklingur er í COVID göngudeild spítalans, þar af 2.530 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 309 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.