Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
42 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Átta eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 64 ár.
8.076 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 2.621 barn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 327 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.