Landspítali er á neyðarstigi
Í dag liggja 46 sjúklingar með COVID á Landspítala, þar af eru 33 í einangrun og 13 lausir úr einangrun á ýmsum deildum spítalans. Nú eru 7 á gjörgæslu, 2 í öndunarvél.
Í gær bættust 6 sjúklingar við og 5 voru útskrifaðir.
20 einstaklingar með COVID komu til meðferðar í COVID göngudeild í gær.
Í fjarþjónustu eru nú 7.941, þar af 2.783 börn. Gulir eru 153 og 1 rauður.
Nú eru 138 starfsmenn í einangrun og 109 í sóttkví.
- Í gær voru umfangsmiklar skimanir á Landakoti og hjartadeild. Einn sjúklingur greindist til viðbótar á Landakoti en enginn á hjartadeild. Nú eru COVID sjúklingar á sjö legudeildum og báðum gjörgæsludeildum.
- Unnið er sleitulaust að því að manna allar einingar. Mönnun COVID deilda og gjörgæsludeilda er stöðug áskorun og er vinnuframlag stjórnenda fjölmargra eininga fordæmalaust.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.