Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
32 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 65 ár.
8.815 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 3.150 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala (í einangrun eða innlögn ) eru 163.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 350 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.