Frá Nýjum Landspítala ohf.:
Vegna framkvæmda á Hringbrautarsvæðinu tengt nýjum spítala og breytingum á Vatnsmýrarvegi, sem fær nú nýtt heiti, Fífilsgata, til norðurs frá Hringbraut er lokað fyrir umferð í norður fyrir alla umferð aðra en stætó og neyðarbíla. Umferð er áfram opin til suðurs fyrir alla. Þá mun gönguleið verða tryggð fyrir alla á svæðinu.
Þessi lokun og fyrirkomulag á akstursleiðum verður þannig í um 3 mánuði. Síðan á eftir að taka ákvörðun um frekari tilhögun þegar farið verður í endurgerð á Fífilsgötu og gröft fyrir bílastæðahúsi sem kemur á horni Fífilsgötu og Hringbrautar.
Umferð úr austri um Hringbraut þarf því að fara um Njarðargötu til að komast að Barnaspítala og bílastæðum Landspítala á vestursvæðinu ofan Umferðarmiðstöðvarinnar (BSÍ).
Sjá yfirlitsmynd af svæðinu hér fyrir ofan.