Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
37 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél.
Karlmaður á áttræðisaldri lést á gjörgæslu á síðasta sólarhring.
Meðalaldur innlagðra er 63 ár.
9.334 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 3.366 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala (í einangrun eða innlögn) eru 213.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 366 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.