Landspítali er á neyðarstigi
Í dag liggja 33 sjúklingar með COVID á Landspítala. Þar af eru 23 í einangrun með virkt smit og 10 eru í bataferli. Í gær bættust 3 við hópinn og 7 voru útskrifaðir. Á gjörgæslu eru 3 sjúklingar, tveir í öndunarvél og annar þeirra í ECMO (hjarta- og lungavél). Allir eru lausir úr einangrun. Andlát var á smitsjúkdómadeild þegar kona á níræðisaldri lést. Hún var með COVID en einnig alvarleg undirliggjandi vandamál.
9.206 manns eru fjarþjónustu á COVID-19 göngudeild, þar af 3.259 börn.
219 starfsmenn eru fjarverandi vegna eingrunar en í gær greindust 22 og álíka stór hópur losnaði úr einangrun.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.
Sérstakar tilkynningar
1. Vísað er á skýringarmynd á covid.is sem sýnir myndrænt hvernig nýjar reglur um sóttkví virka, starfsmenn eru hvattir til að kynna sér þessar reglur vel en vera samt meðvitaðir um að reglur Landspítala gagnvart útsettum starfsmönnum eru óbreyttar og er ekki gerður greinarmunur á hvar fólk var útsett. Farsóttanefnd vinnur nú að útfærslu reglna á Landspítala með hliðsjón af þessari framsetningu.
2. Varðandi fólk sem er í smitgát í samfélaginu þá gildir um það, eins og alltaf hefur gilt um fólk í sóttkví eða einangrun, að því er heimilt að sækja sér nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og ber þá meðferðaraðli ábyrgð á að taka á móti viðkomandi með viðeigandi hlífðarbúnaði. Ef hægt er að fresta komu fram yfir smitgátartímann þá er það kostur en ekki má fresta nauðsynlegum erindum.
3. Vakin er sérstök athygli á að frá og með 1. febrúar telst bólusetningarvottorð aðeins viðurkennt hafi ekki liðið meira en 270 dagar frá grunnbólusetningu í þeim tilvikum sem einstaklingur hefur ekki gengist undir örvunarbólusetningu. Þetta þýðir í raun að þeir sem ekki hafa fengið örvunarskammt nú þegar eru með bólusetningavottorð sem hafa einungis gildistíma í 9 mánuði frá seinni bólusetningu eða einni Janssen. Farsóttanefnd hvetur enn og aftur starfsmenn til að þiggja örvunarbólusetningu um leið og tilskilinn tíma er liðinn. Áfram er bóluett í Laugardalshöll alla virka daga frá kl. 10:00 til 15:00 og þarf ekki að hafa boð til að fara þangað.
4. Þá er áfram minnt á að vikulega er komið með bóluefni fyrir sjúklinga sem óska eftir 1., 2. eða 3 bólusetningu. Eina sem þarf að gera er að senda verkefnastjóra farsóttanefndar kennitölu viðkomandi í Heilsugáttarskilaboðum og þá munu sprautur skila sér að réttan stað. Fastir bólusetningadagar eru þriðjudagar en ef sérstakar aðstæður eru upp þá er sjálfsagt að skjótast með bóluefni á öðrum virkum dögum.