Landspítali er á hættustigi.
Staðan kl. 9:00
21 sjúklingur liggur á Landspítala með COVID-19. Þrír eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 65 ár.
8.653 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 3.006 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala (í einangrun eða innlögn) eru 215.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 407 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.