Landspítali er á hættustigi.
Staðan kl. 9:00
21 sjúklingur liggur á Landspítala með COVID-19. Tveir eru á gjörgæslu, annar þeirra í öndunarvél.
Kona á sjötugsaldri lést í gær á gjörgæslu vegna COVID-19 veikinda.
9.034 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 3.119 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 245.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.