Landspítali er á hættustigi.
Staðan kl. 9:00
48 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Þrír eru á gjörgæslu, enginn þeirra í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 64 ár.
Karlmaður á sextugsaldri með COVID-19 lést á gjörgæslu í gær.
7.862 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 2.276 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 363.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.