Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
55 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél.
- Ekki eru lengur birtar tölur um fjarþjónustu vegna þess að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Læknavaktin hafa tekið við þeirri þjónustu.
Landspítali sinnir áfram göngudeildarþjónustu COVID-19 veikra.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.
(Færri tölur birtar en venjulega virka daga vegna forfalla)