Frá farsóttanefnd Landspítala:
Heimsóknir verða leyfðar á legudeildir Landspítala (ekki bráðamóttökur) með eftirfarandi hætti frá og með 24. mars 2022:
Heimsóknartími er að öllu jöfnu virka daga milli kl. 16:30 og 19:30 og frá kl. 14:30 til 19:30 um helgar og á almennum frídögum. Til að byrja með verður leyfður einn gestur til hvers sjúklings á dag og skal heimsóknin ekki vara lengur en klukkustund.
Tímasetningar heimsókna geta verið mismunandi milli deilda og er mikilvægt að kynna sér reglur þeirra. Stjórnendur geta áfram veitt undanþágur frá þessu fyrirkomulagi eins og verið hefur.
Stefnt er að því að létta frekar á heimsóknartakmörkunum 1. apríl n.k. ef aðstæður leyfa.