Landspítali er á neyðarstigi
Staðan kl. 9:00
59 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19, þar af 54 með virkt smit. Tveir eru á gjörgæslu, báðir í öndunarvél.
Nú eru 5 börn inniliggjandi með COVID-19, þar af eitt á nýburagjörgæslu (vökudeild).
- Ekki eru lengur birtar tölur um fjarþjónustu vegna þess að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Læknavaktin hafa tekið við þeirri þjónustu.
Landspítali sinnir áfram göngudeildarþjónustu COVID-19 veikra.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.
- Landspítali beinir því til almennings að hringja ekki á deildir spítalans í leit að upplýsingum um viðbrögð vegna COVID-19. Bent er á símanúmerið 513 1700 þar sem er netspjall Heilsuveru með upplýsingum og ráðgjöf um COVID-19. Upplýsingar er einnig að fá á vefjum Landspítala, Embættis landlæknis og á www.covid.is.
- Minnt er á að Landspítali er á neyðarstigi og af þeim sökum eru enn í gildi umfangsmiklar sýkingavarnir á spítalanum, þar á meðal er algjör grímuskylda og heimsóknarbann nema með sérstökum undantekningum.