Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala á hættustigi frá 28. mars 2022
Nýjar breytingar eru feitletraðar
- Grímuskylda er hjá öllum starfsmönnum, heimsóknargestum, ferlisjúklingum og sjúklingum legudeilda sem fara út af deild í rannsóknir/meðferð. Á öllum bráðamóttökum eru notaðar fínagnagrímur án ventils við umönnun sjúklinga. Einnig er ráðlagt að nota fínagnagrímur við umönnun nýinnlagðra sjúklinga meðan ekki er búið að svara innlagnasýni (skimsýni f. COVID)
- Nota skal fínagnagrímur við eftirfarandi aðstæður:
a. Á öllum bráðamóttökum (í sjúklingaumönnun)
b. Þegar tekið er á móti sjúklingi á legudeild og niðurstöður úr innlagnasýni liggur ekki fyrir
c. Á degi 6 og 7 eftir Covid smitgát ef starfsmaður mætir til vinnu strax að 5 dögum liðnum
d. Starfsmaður sem fær einkenni í vinnu skal skipta um grímu, setja á sig fínagnagrímu og fara í sýnatöku en má ljúka vinnudeginum ef hann treystir sér til
e. Í umgengni við Covid jákvæða sjúklinga og þá sem eru útsettir og/eða með einkenni (grunur um Covid), sýni í gangi - Nándarmörk eru 1 metri nema ef gríma er tekin niður í neysluhléi, þá 2 metrar.
- Heimsóknir eru takmarkaðar við einn gest á dag til hvers sjúklings innan skilgreinds heimsóknartíma. Undanþágur eru áfram veittar við sérstakar aðstæður.
- Leyfi sjúklinga í endurhæfingarskyni og/eða sem undirbúningur fyrir útskrift eru heimil. Ekki þarf leyfi farsóttanefndar fyrir slíku.
- Sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknardeildir í viðtöl/rannsókn/meðferð mega hafa með sér fylgdarmann ef það er nauðsynlegt.
- Reglur um útsetta sjúklinga er að finna í flæðiriti hér.
- Ef starfsmenn með COVID eru einkennalausir/einkennalitlir og treysta sér til vinnu áður en 5 daga einangrun er lokið (greiningardagur með viðurkenndu prófi er dagur 0), þá er það heimilt en þeir þurfa að vera með fínagnagrímu án ventils og ekki vera nálægt samstarfsfólki þegar gríma er tekin niður til að matast.
- Fundir starfsmanna eru nú heimilir. Allir fundarmenn með grímu og gæta að eins metra fjarlægð og tveggja metra ef gríma er tekin niður til að neyta veitinga.
- Sjúklingar sem leggjast brátt inn á legudeildir eru skimaðir við innlögn og sjúklingar sem flytjast á hjúkrunarheimili eru skimaðir fyrir útskrift.