Árleg uppskeruhátíð vísindastarfs á Landspítala, Vísindi á vordögum, verður miðvikudaginn 4. maí 2022.
Uppskeruhátíðin verður í beinni útsendingu á miðlum Landspítala milli kl. 12:00 og 15:00.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra flytur ávarp í byrjun Vísinda á vordögum og á eftir fylgir hefðbundin dagskrá þar sem útnefndir eru heiðursvísindamaður Landspítala og ungur vísindamaður spítalans.
Kynning verður á vegum Birtingasjóðs Landspítala á birtum rannsóknum.
Veittir verða styrkir úr Vísindasjóði Landspítala og Minningargjafasjóði Landspítala Íslands.