Árleg uppskeruhátíð vísinda á Landspítala, Vísindi á vordögum, er miðvikudaginn 4. maí 2022.
Formleg dagskrá er í Hringsal á Landspítala Hringbraut milli kl. 12:00 og 14:40 í beinu streymi.
Opnaður hefur verið ársskýrsluvefurinn „Vísindi á vordögum 2022“ á vef Landspítala. Þar er dregnar saman upplýsingar í texta, tölum, myndum og myndskeiðum um vísindastarfið á Landspítala árið 2021 ásamt því sem tengist Vísindum á vordögum 2022, þar á meðal um útnefningu heiðursvísindamanns og ungs vísindamanns spítalans, verðlaunaveitingar og styrkveitingar. Þar er einnig að finna ávörp yfirlæknis vísindadeildar og formanns vísindaráðs.