Nú er genginn í garð sá tími ársins að fólk er að leggja land undir fót og margir að fara í sumarfrí. Starfsfólk Blóðbankans biðlar til allra blóðgjafa að líta við áður en farið er í fríið. Undanfarið hefur verið mikil notkun á blóðhlutum og þörf á blóði er því mikil.
Best er að bóka sér tíma í blóðgjöf til að forðast biðraðir.
Blóðbankinn er á Snorrabraut 50 í Reykjavík og á Glerártorgi á Akureyri.