Hollvinasamtök Grensásdeildar afhentu formlega nýjan og endurbættan garð við endurhæfingardeildina að Grensási að viðstöddum heilbrigðisráðherra.
Hollvinasamtökin stóðu að endunýjun garðsins. Um er að ræða endurgerð á lóð við sundlaugabygginguna en með endurgerðinni er verið að skapa vistlegan og skjólgóðan garð með gróðri, fjölbreyttum yfirborðsefnum og æfingatækjum. Í hönnun er tryggt aðgengi fyrir alla þannig að lóðina er hægt að nota sem endurhæfingarsvæði.
Á Grensási fer fram umönnun og þjálfun sjúklinga sem glíma við færniskerðingu vegna slysa eða ýmissa sjúkdóma. Í mörgum tilvikum hefur alvarlegt slys eða áfall borið brátt að og sálrænt áfall sjúklinga því oft mikið og erfitt. Því skiptir máli að aðstæður til endurhæfingar séu sem bestar og endurbæturnar sem teknar voru í notkun nú því til mikilla bóta.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Þorkell Þorkelsson tók af þessu tilefni í rigningunni á Grensási.