Fulltrúar í samnorrænum vinnuhópi Norðurlandanna eru að leggja lokahönd á sameiginlega stefnu um samstarf við að tryggja lyfjabirgðir. Heilbrigðisráðherrar Danmerkur, Noregs og Íslands hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um sameiginleg útboðsferli og lyfjainnkaup. Samstarfinu eru ætlað er að tryggja lyfjaframboð og auka hagkvæmni í innkaupum.
Fulltrúar lyfjanefndar og innkaupadeildar Landspítala hafa verið í samvinnu við hin norrænu ríkin um kaup og notkun á lyfjum í gegnum sameiginlegan vinnuhóp sem er nefndur Nordisk lægemiddel forum (NLF). Þessi samvinna hefur skilað talsverðum fjárhagslegum ávinningi fyrir Ísland meðal annars með þátttöku í samnorrænum útboðum og fleiru. Ein og sér eiga Norðurlöndin oft erfitt með að tryggja sér birgðir af nýjum og kostnaðarsömum sjúkrahúslyfjum á hagstæðu verði. En með aukinni samvinnu verður það einfaldara.
Unnið hefur að þessu samstarfi undanfarin sjö ár. Vinnuhópurinn áætlar að skila af sé sameiginlegri stefnumótun á næstu mánuðum.
Nánar má fræðast um málið hér (English)