Stækkuð bráðadagdeild var tekin í notkun á Landspítala Fossvogi 6. júlí 2022. Aukin starfsemi deildarinnar við bættar aðstæður er mikilvægur liður í því að koma til móts við þann mikla vanda sem bráðamóttakan hefur glímt við.
Á bráðadagdeild er þjónusta við sjúklinga með aðkallandi lyflæknisfræðileg vandamál sem krefjast meiri rannsókna, sérfræðimats eða meðferðar en hægt er að veita með góðu móti utan Landspítala en eru þó ekki það bráð að þau þarfnist skjótrar úrlausnar á bráðamóttöku.
Bráðadagdeildin er í Fossvogi. Fundarsal í skála á 2. hæð hefur verið breytt í herbergi fyrir sjúklinga með 6 meðferðarstólum. Jafnframt hefur verið sett herbergi í skálann, framan við herbergi þar sem sýklalyfjagjöf í æð fyrir ferlisjúklinga hefur verið, þar sem að unnt verður að skoða sjúklinga og fara yfir niðurstöður rannsókna. Þá er fyrirhugað að aðgerðarherbergi taugalækna tengt legudeild B2 flytjist á E2 og þar verði vinnuaðstaða starfsfólks bráðadagdeildar lyflæknaþjónustunnar.
Um miðjan júní var starfsemi bráðadagdeildar aukin þegar þar var sett á fót fjarþjónusta sem ætlað er að koma bráðveikum sjúklingum sem þarfnast þjónustu spítalans en þó mats eða meðferðar á bráðamóttöku í viðeigandi farveg hratt og vel. Þjónustan felst í fjarþjónustu við tilvísandi lækna á Læknavakt, heilsugæslustöðvum og öldrunarstofnunum og við sjúkraflutningamenn eftir atvikum.
Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma á Landspítala:
„Mikilvægi þessara breytinga er óumdeilt. Unnt verður að taka á móti fleiri sjúklingum að degi til til rannsókna og meðferðar án þess að til innlagnar þurfi að koma. Með góðu skipulagi verður unnt að veita sjúklingum góða þjónustu á einum stað.“
Myndir voru teknar við opnun stækkaðrar bráðadagdeildar. Þrír á spjalli eru Már Kristjánsson yfirlæknir, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Runólfur Pálsson forstjóri.