Björn Zoëga, forstjóri Karolínska sjúkrahússins í Stokkhólmi, er formaður stjórnar Landspítala sem heilbrigðisráðherra hefur skipað samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu.
Alþingi breytti lögum um heilbrigðisþjónustu í vor þess efnis að Landspítala yrði skipuð stjórn. Heilbrigðisráðherra skipar fimm menn í stjórnina og tvo til vara, til tveggja ára í senn. Jafnframt skipar ráðherra tvo áheyrnarfulltrúa úr hópi starfsmanna Landspítala með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.
Stjórn Landspítala
Björn Zoëga, forstjóri og bæklunarskurðlæknir, formaður.
Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri og doktor í stjórnun og menntunarfræðum.
Höskuldur H. Ólafsson, ráðgjafi og viðskiptafræðingur.
Ingileif Jónsdóttir, deildarstjóri smit- og bólgusjúkdóma hjá Íslenskri erfðagreiningu og prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands.
Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri með meistarapróf í stjórnun og stefnumótun, varaformaður.
Varamenn
Birgir Gunnarsson, framkvæmdastjóri og rekstrarfræðingur.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með meistarapróf í mannauðsstjórnun.
Áheyrnarfulltrúar starfsmanna
Marta Jóns Hjördísardóttir, hjúkrunarfræðingur.
Örvar Gunnarsson, krabbameinslæknir.
Heilbrigðisráðherra skipar stjórn Landspítala - frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins
Um stjórn Landspítala í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007