Helga Atladóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á göngu- og samfélagsdeild á Landakoti.
Helga lauk BSc prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og MSc prófi í hjúkrunarstjórnun frá sama skóla árið 2011.
Helga hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á Landspítala frá árinu 2016. Áður starfaði hún sem hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun og á endurhæfingardeild í þýskalandi og síðar sem hjúkrunarforstjóri á Höfða, hjúkrunar og dvalarheimili Akranesi.
Frá árinu 2016 hefur Helga gengt stöðu hjúkrunardeildarstjóra á útskriftardeild L2 á Landakoti.