Takmarkanir verða á umferðarleiðum við Landspítala Hringbraut á menningarnótt í Reykjavík laugardaginn 20. ágúst 2022. Takmarkanirnar gilda frá kl. 07:00 til 24:00.
- Aðeins verður hægt að fara til og frá Landspítala um Snorrabraut og Eiríksgötu. Mót þeirra gatna verða lokuð. Fólk sem á erindi á spítalann þarf að gera grein fyrir sér og verður hleypt í gegn af hliðvörðum sem verða þarna.
- Mikilvægt er að starfsmenn Landspítala sem eiga leið til og frá Landspítala Hringbraut á menningarnótt hafi starfsmannakortið á sér.