Farsóttanefnd, sýkingavarnadeild og bólusetningarteymi Landspítala hyggjast bjóða öllum starfsmönnum og verktökum bólusetningu gegn inflúensu og fjórða skammt af bóluefni gegn COVID. Starfsmenn fá sms-skilaboð í þessa bólusetningu og gildir boðið í báðar bólusetningarnar. Tilkynnt verður síðar um nákvæma tímasetningu.
Hverjir eru boðaðir núna í bólusetningu?
- Allir starfsmenn og verktakar eru boðaðir í inflúensubólusetningu og fjórðu bólusetningu gegn COVID óháð bólusetningastöðu þeirra eða hvort þeir hafi nýlega fengið COVID.
Hvenær verður bólusett?
Hópur 1 er boðaður 27. september, hópur 2 þann 28. september. Hópar 3 til 6 verða boðaðir miðvikudaginn 27. september
þriðjudagur 27.9. - 13:00-18:30
Miðvikudagur 28.9. - 13:00-18:30
Fimmtudagur 29.9. - 13:00-18:30
Föstudagur 30.9. 13:00-18:30
Laugardagur 1.10. 9:00-15:30
Sunnudagur 2.10. - 9:00-11:30
Hverjir ættu að þiggja bólusetningu gegn COVID á Landspítala núna?
- Þeir sem hafa fengið tvær eða þrjár bólusetningar og meira en 4 mánuðir eru liðnir frá síðustu bólusetningu.
- Þeir sem hafa fengið tvær eða þrjár bólusetningar, meira en 4 mánuðir frá síðustu bólusetningu og meira en 6 vikur frá síðustu COVID sýkingu.
Hverjir ættu ekki að þiggja bólusetningu á Landspítala núna?
- Þeir sem eru óbólusettir verða að panta tíma á sinni heilsugæslustöð og hefja grunnbólusetningu sem er gerð með öðru bóluefni.
- Þeir sem hafa fengið eina sprautu af einhverju bóluefnanna verða að panta tíma á sinni heilsugæslustöð og ljúka grunnbólusetningu sem er gerð með öðru bóluefni.
- Þeir sem hafa nýlega fengið COVID ættu að bíða þar til meira en 6 vikur hafa liðið frá smiti.
- Þeir sem eru lasnir með kvefeinkenni og/eða hita ættu að bíða.
- Þeir sem hafa ofnæmi fyrir innihaldsefnum í inflúensubóluefninu - sjá upplýsingar um bóluefni.
Hvað ef ég vil ekki bæði bólusetningu gegn COVID og inflúensu?
- Þá mætirðu á boðuðum tíma og segir bólusetjara að þú viljir aðeins eina bólusetningu.
- Ef þú ætlar að fá báðar, en ekki á sama tíma, þá er mælt með að byrja á COVID bólusetningu og bíða í tvær vikur með að fá inflúensubólusetningu.
- Ef þú ætlar aðeins að fá inflúensubólusetningu þá er það í góðu lagi og þú færð bara COVID bólusetninguna síðar.
Hvað ef ég get ekki mætt á boðuðum tíma?
- Þú mátt mæta hvenær sem þér hentar innan auglýsts þjónustutíma og þarft ekki að láta vita.
Verður hægt að fá þessar bólusetningar síðar?
- Já, það verða opnir tímar í inflúensubólusetningu fram á haust meðan birgðir endast. Það verður auglýst á innri miðlum spítalans.
- Mælt er með að leita til heilsugæslunnar um COVID bólusetningu utan þess tímabils sem nú er bólusett er á Landspítala.
Er meiri hætta á að verða lasinn ef maður tekur bæði bóluefnin í einu?
- Nei, rannsóknir hafa sýnt að svo er ekki en svæðisbundin viðbrögð geta komið fram á báðum handleggjum.
Skiptir máli hversu oft og hvenær ég hef fengið COVID?
-Nei, það skiptir ekki máli hversu oft en mælt er með að láta 6 vikur líða frá sýkingu að bólusetningu.
Er COVID bóluefnið öðruvísi en það sem hefur verið boðið upp á áður?
- Já, þetta er ný útgáfa af COVID bóluefni sem er blanda af fyrra bóluefni og bóluefni sem virkar sérstaklega gegn ómíkron BA.1.
Má ég fá bólusetningu á meðgöngu eða ef ég er með barn á brjósti?
- Meðganga og brjóstagjöf eru ekki frábending sbr. fylgiseðil og texta á síðu Lyfjastofnunar / Lyfjastofnunar Evrópu.
Hvað ef ég hef fengið bólusetningar gegn COVID erlendis og þær eru ekki skráðar í íslenska bólusetningakerfið?
- Þá skaltu hafa samband við starfsmannahjukrun@landspitali.is eða netspjall Heilsuveru og óska eftir að bólusetning þín sé skráð í kerfið. Nauðsynlegt er að hafa upplýsingar um dagsetningar og tegund bóluefnis. Mynd af bólusetningavottorði er til bóta.
Nánari upplýsingar
Ef spurningar vakna sem ekki er svarað hér þá skaltu endilega senda þær á farsottanefnd@landspitali.is sem fyrst.