Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala á óvissustigi frá 11. október 2022
1. Starfsmenn/nemar þurfa nú aðeins að bera skurðstofugrímu í beinum samskiptum við inniliggjandi sjúklinga.
2. Inniliggjandi sjúklingar þurfa ekki bera skurðstofugrímu þegar þeir fara út af deild í rannsóknir/meðferð en starfsmenn sem sinna þeim skulu bera grímu.
3. Ferlisjúklingar og heimsóknargestir eiga að bera skurðstofugrímu.
4. Notkun fínagnagríma á bráðamóttökum er valkvæð nema þar sem um er að ræða staðfest COVID smit eða grun um COVID.
5. Ef starfsmaður/nemi er með einkenni öndunarfærasýkinga á viðkomandi ekki að vera í vinnu nema einkenni séu mjög væg og á undanhaldi en þá á starfsmaður að bera
skurðstofugrímu þar til einkenni eru horfin.
6. Heimsóknir til sjúklinga á legudeildum eru takmarkaðar við einn gest í einu (ásamt fylgdarmanni ef nauðsyn krefur) innan skilgreinds heimsóknartíma. Undanþágur eru áfram
veittar við sérstakar aðstæður.
7. Leyfi sjúklinga í endurhæfingarskyni og/eða sem undirbúningur fyrir útskrift eru heimil. Ekki þarf leyfi farsóttanefndar fyrir slíku.
8. Sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknardeildir í viðtöl/rannsókn/meðferð mega hafa með sér fylgdarmann. Báðir þurfa að vera með grímu.
9. Reglur um útsetta sjúklinga er að finna í flæðiriti hér.
10. Fundir starfsmanna eru heimilir án sérstakra varúðarráðstafana.
11. Ekki þarf lengur að skima einkennalausa sjúklinga við innlögn. Skima skal sjúklinga með einkenni fyrir öllum öndunarfæraveirum. (Nýtt frá eldri reglum)