Eftirtaldir listamenn koma fram og styrkja verkefnið:
Karlakór Grafarvogs (stjórnandi Íris Erlingsdóttir), Diddú, Ellen Kristjánsdóttit og Systur, Gissur Páll Gissurarson, Gréta Salome, Guðrún Gunnarsdóttir, Sigga Beinteins og Jogvan Hansen, Guðrún Árný Karlsdóttir, Lay Low, Stefán Hilmarsson og Vinir Ragga Bjarna.
Undirleikarar: Lára Bryndís Eggertsdóttir og Matthías Stefánsson.
Kynnir: Felix Bergsson.
Miðasala: Á tix.is
Miðaverð: 6.500 krónur.
Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi hefur um árabil staðið fyrir tónleikum sem þessum og aðsóknin hefur alltaf verið mikil. Fjörgyn hvetur alla, sem tök hafa á, að tryggja sér miða á tónleikana og hlýða á tónlistarfólkið í einni stærstu kirkju landsins við mjög góðar aðstæður, um leið og stutt er við gott málefni.