Tíu störf framkvæmdastjóra á Landspítala, samkvæmt nýju skipuriti spítalans sem tekur gildi 1. janúar 2023, hafa verið auglýst laus til umsóknar. Frestur til að sækja um rennur út 18. nóvember 2022.
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
- Framkvæmdastjóri hjúkrunar
- Framkvæmdastjóri þróunar
- Framkvæmdastjóri reksturs og mannauðs
- Framkvæmdastjóri lyflækninga og bráðaþjónustu
- Framkvæmdastjóri kvenna- og barnaþjónustu
- Framkvæmdastjóri klínískrar rannsóknar- og stoðþjónustu
- Framkvæmdastjóri öldrunar- og endurhæfingarþjónustu
- Framkvæmdastjóri geðþjónustu
- Framkvæmdastjóri skurðlækningaþjónustu og skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu
- Framkvæmdastjóri hjarta- og æðaþjónustu og krabbameinsþjónustu