Sex manns hófu„ Project SEARCH“ starfsnám á Landspítala þann 19. september 2022. Þetta er blandaður hópur fatlaðs fólks sem annars vegar lauk framhaldsskóla síðasta vor eða hefur reynslu af vinnu á sérstökum vinnustöðum ætluðum fötluðu fólki.
Starfsnemarnir læra störf á þjónustusviði spítalans, þrír eru í eldhúsi, einn í líni og tveir við rúmaþvott í Fossvogi. Nemendurnir hafa náð miklum framförum, öðlast öryggi í þeim störfum sem þeim eru falin og aukna trú á eigin getu. Samstarfsfólkið hefur mætt nemendunum af jákvæðni og verið hjálplegt sem þykir hafa skipt miklu.
Ás styrktarfélag hóf undirbúning að náminu á árinu 2020 með samstarfi við Project SEARCH og undirritaði samning þar um. Project SEARCH leggur til námsefni, þjálfun fyrir starfsfólk, aðstoðar við að koma verkefninu af stað og veitir ráðgjöf eftir að það er hafið. Í upphafi árs 2022 fékk Ás styrktarfélag styrk frá félags- og vinnumálaráðherra til að fjármagna verkefnið og í kjölfarið kom Landspítali að samstarfinu með því að útvega aðstöðu til kennslu og starfsþjálfunar og tengilið sem sér um að finna störf til kennslu. Ás styrktarfélag hefur lýst þakklæti með að Landspítali taki þátt í verkefninu og greiði þannig götu fyrir fatlað fólk að auknum atvinnutækifærum. Það sé ómetanlegt að fá tækifæri til að starfa á jafn fjölmennum og fjölbreyttum vinnustað.
Project SEARCH á uppruna sinn á Cincinnati Children´s Medical Center í Ohio í Bandaríkjunum. Erin Riehle sem starfaði sem hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsinu fór að velta fyrir sér hvers vegna fatlað fólk sem naut þjónustu sjúkrahússins sem börn starfaði þar ekki sem fullorðið fólk. Eins hafði spítalinn sett sér markmið um fjölbreyttan starfsmannahóp en hvergi var minnst á fatlað fólk. Hún hafði samband við Susie Rutkowski sem þá starfaði við sérskóla fyrir fötluð ungmenni til að kanna hvort þar væri fólk sem gæti hugsanlega komið til starfa. Það varð úr að til ráðningar kom en fljótlega sáu þær að fólkið þurfti lengri aðlögunarferli að störfunum. Þær þróuðu starfsnám sem byggði á innleiðingarferli hjúkrunarfræðinga. Á þeim 26 árum sem liðin eru hefur námskráin þróast heilmikið.
Project SEARCH er níu mánaða starfsnám fyrir fatlað fólk sem hefur lokið framhaldsskóla. Markmið námsins er að starfsnemar öðlist fjölbreytta vinnufærni sem nýtist þeim til að starfa á almennum vinnumarkaði. Auk þess er áhersla á að auka sjálfstraust og sjálfstæði.
Segja má að námið skiptist í fjóra hluta. Fyrstu þrjár vikur námstímans eru nemendur að læra ýmiss konar grunnþekkingu sem tengist vinnu svo sem samskipti, starfsreglur, öryggisreglur og ýmislegt fleira. Síðan hefst hið eiginlega starfsnám þar sem hver og einn starfsnemi vinnur í þremur starfsdeildum, 10 vikur í senn. Lögð er áhersla á að nemandinn fái þannig sem fjölbreyttasta reynslu á tímabilinu. Samhliða starfsnáminu er unnið að fræðslu um ýmislegt er varðar atvinnumál, réttindi, skyldur, framkomu, fjármál o.s.frv.
Nánari upplýsingar um Project SEARCH er að finna hér
Ás styrktarfélag - sjálfseignarstofnun með þjónustu við fatlað fólk