Rosemary Lea Jones útskrifaðist formlega úr sérnámi í bráðalækningum á Landspítala 2. desember 2022 og er fyrst til þess að ljúka þessu sérnámi.
Rosemary hefur bakgrunn sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku á Nýja-Sjálandi áður en hún hóf læknanám þar í landi. Hún hefur stundað sérnám í bráðalækningum á Landspítala frá árinu 2015.
Bráðamóttaka Landspítala hefur hlotið formlega viðurkenningu mats- og hæfisnefndar til að veita fullt sérnám í bráðalækningum samkvæmt reglugerð nr 467/2015 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði þess að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Fer námið fram í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri og byggir á marklýsingu og framvinduskráningarkerfi frá Royal College of Emergency Medicine í Bretlandi. Námið tekur alls sex ár. Kennslustjóri er Hjalti Már Björnsson.
Rosemary Lea Jones er fyrst til að ljúka þessu skipulagða sérnámi í bráðalækningum á Landspítala. Hún starfar áfram á deildinni eftir útskriftina auk þess sem vera læknir í þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.
Mynd: Hjalti Már Björnsson kennslustjóri bráðalækninga, Rosemary Lea Jones bráðalæknir, Gunnar Thorarensen, yfirlæknir sérnáms á Landspítala.