Keyptar hafa verið nýjar vöggur fyrir barnaeignarþjónustuna á Landspítala fyrir gjafafé Hringsins.
Kvenfélagið Hringurinn hefur um áratuga skeið styrkt verkefni sem snúa að bættri þjónustu við börn á Landspítala og víðar. Nú þegar komið var að því að endurnýja allar vöggur fyrir barneignarþjónustuna var leitað til Hringsins um styrk til að kaupa nýjar vöggur. Hringskonur urðu góðfúslega við beiðninni og voru keyptar 25 nýjar vöggur fyrir rúmlega sex milljónir króna.
Vöggurnar voru formlega afhentar í febrúar 2023 og Hringskonum færðar miklar þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem nýfæddir skjólstæðingar munu njóta um ókomna framtíð.