Rannsóknarráðstefna sérnámslækna í lyflækningum verður föstudaginn 24. febrúar 2023.
Staður: Nauthól, Nauthólsvegur 106, 101 Reykjavík
Fundarstjórar: Helga Ágústa Sigurjónsdóttir klínískur prófessor & Einar Stefán Björnsson prófessor
Skráning: Til kl. 12:00 miðvikudaginn 22. febrúar - gerdurri@landspitali.is.
(Sérfræðingar greiða fyrir matinn 7.900 kr. og allir greiða sína drykki með matnum)
Læknablaðið: Fylgirit 113 - sérnámslæknaþing 2023
Dagskrá
13:00 Setning - Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
13:15 Mikilvægi þess að hafa sínar eigin rannsóknarniðurstöður! - Einar Björnsson
13:35-14:50 Ágrip sérnámslækna (8 mín + 7 mín umræður)
- 13:35 Gerviliðsýkingar á Íslandi 2003-2020 - Signý Lea Gunnlaugsdóttir
- 13:50 Lýðgrunduð rannsókn á horfum sjúklinga með primary biliary cholangitis og tengslum sjúkdómsins við aðra sjálfsofnæmissjúkdóma - Kristján Torfi Örnólfsson
- 14:05 Krabbamein í eggjastokkum, eggjaleiðurum og lífhimnu á Íslandi 2005-2018 - Arna Rut Emilsdóttir
- 14:20 Tengsl ofbeldissögu kvenna við hjarta- og æðasjúkdóma: lýðgrunduð rannsókn - Rebekka Lynch
- 14:35 Stenotrophomonas maltophilia blóðsýkingar á Íslandi - Ólafur Orri Sturluson
14:50-15:00 Ágrip sérnámslækna – styttri (3 mín + 1 mín umræður)
- 14:50 Tengsl sjálfsmótefna við svipgerð og alvarleika sarklíkis. Íslenska sarklíkisrannsóknin - Berglind Árnadóttir
- 14:55 Árangur meðferðar sykursýki 1 á Landspítala - Ívar Sævarsson
15:00 Kaffi
15:30-15:50 Þýðing þess að fá Rannísstyrk - Dr. Berglind Aðalsteinsdóttir
15:50-17:20 Ágrip sérnámslækna
- 15:50 Samband milli leiðrétts QT bils fyrir aðgerð og dánartíðni af öllum orsökum eftir skurðaðgerðir að hjartaaðgerðum undanskildum -
Helena Xiang Jóhannsdóttir
- 16:05 Sykursteranotkun á Íslandi á 17 ára tímabili og staða beinverndar hjá langtímanotendum sykurstera - Hulda Hrund Björnsdóttir
- 16:20 Sértæk mótefnalitun fyrir einhliða frumkomið aldósterónheilkenni (FA) - Hrafnhildur Gunnarsdóttir
- 16:35 Skjaldkirtilstengdar aukaverkanir amiodarone á Íslandi - Páll Guðjónsson
- 16:50 Góðkynja einstofna mótefnahækkun og önnur krabbamein: Lýðgrunduð rannsókn á Íslandi - Sæmundur Rögnvaldsson
- 17:05 Tengsl brisbólgu og krabbameins í brisi - María Björk Baldursdóttir
17:20-17:50 Hátíðarfyrirlestur - Sigurður Yngvi Kristinsson prófessor