Frá farsóttanefnd Landspítala:
Forstjóri Landspítala hefur í samráði við farsóttanefnd ákveðið að færa spítalann af óvissustigi vegna COVID-19 í dag, 14. mars 2023.
Landspítali var settur á óvissustig vegna atburða í Wuhan borg í Kína þann 30. janúar 2020. Síðan þá hefur hann verið færður á óvissustig, hættustig eða neyðarstig alls 19 sinnum.
Í viðbragðsáætlun Landspítala er gert ráð fyrir því að spítalinn sé settur á óvissustig þegar hafa þarf viðbúnað vegna mögulegs eða orðins atburðar. Dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar eru óljósar eða ekki nægar til að virkja viðbragðsáætlun til fulls. Farsóttanefnd er að störfum á óvissustigi og er tengiliður við sóttvarnalækni.
Nú, rúmlega þremur árum eftir fyrsta óvissustig vegna COVID-19, er staðan sú að sjúkdómurinn virðist vera búinn að ná jafnvægi í samfélaginu. Því er ekki lengur ástæða til að vera með sérstakar aðgerðir innan spítalans aðrar en sýkingavarnir til að verjast sjúkdómnum. Þannig var grímuskyldu breytt í valkvæða grímunotkun þann 10. mars s.l. og þar með voru síðustu sértæku ráðstafanirnar felldar úr gildi.
Þrátt fyrir þennan gleðilega áfanga á langri og strangri leið þá er full ástæða til að fylgjast vel með og vera á tánum gagnvart nýjum afbrigðum kórónuveirunnar (SARS-CoV-2), breyttri sjúkdómsmynd og nýjum farsóttum. Það er hlutverk farsóttanefndar að vakta og gera viðvart.
SMELLA Á MYNDINA FYRIR NEÐAN TIL AÐ STÆKKA HANA
Myndin í PDF