Þuríður Anna Guðnadóttir hefur verið ráðin deildarstjóri göngudeildar bæklunarskurðlækninga frá 1. maí 2023.
Þuríður lauk BSc námi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 1997 og MSc. námi í lýðsheilsuvísindum frá HÍ árið 2014.
Hún hefur um það bil 15 ára starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku, þar af 4 ár sem aðstoðardeildarstjóri. Þuríður hefur einnig starfað við rannsóknir og var settur deildarstjóri göngudeildar bæklunarskurðlækninga þegar hún var stofnuð í febrúar síðastliðunum.