Helgihaldið á Landspítala í dymbilviku og um páska 2023 verður í sjónvarpi í öllum húsum spítalans á rás 53 - kl. 9:00 og endurtekið kl. 15:00.
Einnig verður hægt að nálgast útsendinguna á vef spítalans og Facebooksíðu.
Pálmasunnudagur 2. apríl
Séra Ingólfur Hartvigsson og Rósa Kristjánsdóttir sjúkrahúsdjákni leiða stundina.
Skírdagur 6. apríl
Séra Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir og sr. Eysteinn Orri Gunnarsson leiða stundina.
Föstudagurinn langi 7. apríl
Dagbjört Eiríksdóttir sjúkrahúsdjákni og séra Gunnar Rúnar Matthíasson leiða stundina.
Páskadagur 9. apríl
Séra Díana Ósk Óskarsdóttir, séra Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir og séra Hjördís Perla Rafnsdóttir leiða stundina.
Einsöngur: Jóna G. Kolbrúnardóttir
Píanó og orgel: Helgi Bragason