Styrktarfélagið Gleym mér ei býður fólki að kaupa aðgang að streymi frá ráðstefnu félagsins sem haldin verður miðvikudaginn 19. apríl 2023. Ráðstefnan verður á Hilton Nordica hótelinu.
Gleym mér ei er styrktarfélag til stuðnings foreldrum sem missa barn á meðgöngu eða eftir fæðingu. Í tilefni af 10 ára afmæli styrktarfélagsins efnir það til ráðstefnu um missi í barneignarferlinu. Ráðstefnan er ætluð heilbrigðisstarfsfólki og er í samstarfi við Háskóla Íslands, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala og Ljósmæðrafélag Íslands.
Uppselt er á ráðstefnuna en hægt er að kaupa aðgang í streymi sem verður opið í 72 klukkustundir eftir að ráðstefnu lýkur.
Skráningu í streymi lýkur þriðjudaginn 18. apríl kl. 15:00.