Tilboð voru opnuð 14. apríl 2023 í uppsteypu tveggja hæða bílakjallara undir Sóleyjartorgi fyrir framan gamla Landspítalann við Hringbraut. Verkið er liður í uppbyggingu spítalans þar. Um var að ræða opið útboð.
Bílakjallarinn verður milli meðferðarkjarna og fyrirhugaðrar byggingar dag-, göngu- og legudeildar Landspítala austan við torgið.
Bílakjallarinn verður á tveimur hæðum með um 180 bílastæði fyrir þá sem eru að sækja þjónustu eða að koma í heimsóknir. Heildarflatarmál bygginganna er áætlað 7.500 fermetrar.
Kostnaðaráætlun verkkaupa: 1.543.162.114 (100%)
Tilboðin:
- Eykt 2.166.933.211 (140,4%)
- ÞG verk 1.409.947.926 (91,4 %)
(Tölurnar eru án vsk. og á verðlagi apríl 2023)
Nýr Landspítali - NLSH