Vísindasjóður Landspítala úthlutaði verkefnastyrkjum til vísindamanna á Landspítala þann 26. apríl 2023 á Vísindum á vordögum
Vísindasjóðnum bárust 93 umsóknir árið 2023 og var heildarfjárhæð styrkumsókna tæpar 214 milljónir. Úthlutað var styrkjum til 74 verkefna úr sjóðnum að þessu sinni. Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja var um 118 milljónir króna. Styrkþegum hafði verið tilkynnt um styrkveitinguna með rafrænum hætti nokkru fyrir úthlutunina.
Vísindasjóður Landspítala veitir árlega yfir 100 milljónir króna í vísindastyrki til starfsmanna Landspítala. Tilgangur sjóðsins er að styrkja og efla vísindarannsóknir á spítalanum. Vísindaráð Landspítala ber ábyrgð á og hefur umsjón með faglegu mati á þeim umsóknum sem berast sjóðnum.
Styrkveitingar úr Vísindasjóði Landspítala vorið 2023