LÍF styrktarfélag heldur götuhlaupið Lífssporið sunnudaginn 14. maí 2023. Allur ágóði rennur í söfnun til kaupa á nýju sónartæki fyrir kvenlækningadeild 21A.
Ómtæki eru notuð í nánast öllum skoðunum kvenna sem koma á göngudeild kvenlækningadeildar. Tækið sem um ræðir kostar 6.5 milljónir króna..
Ræst verður í hlaupið sunnudaginn 14. maí kl. 11:00 við Nauthól og hlaupið eða gengið um Fossvogsdalinn. Sameiginleg upphitun hefst kl. 10:45 við rásmarkið. Boðið verður upp á 5 km göngu ásamt 5 km og 10 km hlaup.