Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra heimsótti Landspítala Kleppi föstudaginn 12. maí 2023 ásamt Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur aðstoðarmanni ráðherra og Jónu Guðnýju Eyjólfsdóttur, skrifstofustjóra félags- og lífeyrismála.
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala tók á móti ráðherra ásamt Nönnu Briem framkvæmdastjóra geðþjónustu og Guðnýju Valgeirsdóttur, framkvæmdastjóra öldrunar- og endurhæfingarþjónustu.
Málefni geðþjónustunnar voru í forgrunni í heimsókninni. Ráðherra heimsótti öryggis- og réttargeðþjónustu, bæði réttargeðdeild og öryggisgeðdeild, og átti síðan fund með forstjóra og framkvæmdastjórum.
Leit
Loka