Fjórir læknar hafa á vormisseri 2023 útskrifast á Landspítala úr fullu sérnámi í almennum lyflækningum.
Í byrjun maí útskrifaðist Telma Huld Ragnarsdóttir og nú í júníbyrjun útskrifuðust Bára Dís Benediktsdóttir og Elías S. Eyþórsson.
Alls hafa því fjórir sérnámslæknar verið útskrifaðir úr fullu sérnámi í lyflækningum en Vilhjálmur Steingrímsson lauk sama áfanga í lok mars.
(Með Telmu Huld á myndinni fyrir ofan er Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson sérfræðilæknir og kennslustjóri. Bára Dís og Elías eru á myndinni fyrir neðan)