Heimsóknarreglur á Landspítala breytast mánudaginn 12. júní 2023 og verða frá þeim tíma með eftirfarandi hætti:
1. Heimsóknartíma á Landspítala eru á tímabilinu 16:30 til 19:30 virka daga og frá kl. 14:30 til 19:30 um helgar. Að hámarki mega tveir gestir koma í einu til hvers sjúklings. Systkini inniliggjandi barna á Barnaspítala Hringsins mega þó koma í heimsókn með foreldrum í samráði við deildarstjóra/vaktstjóra deilda.
2. Gestir eru beðnir um að fresta heimsókn ef þeir hafa einkenni um öndunarfærasýkingu en bera grímu ef aðstæður leyfa ekki frestun heimsóknar.
3. Sérstök athygli er vakin á því að þessar reglur eiga við um legudeildir en ekki bráðamóttökur, vökudeild, fæðingavakt og meðgöngu- og sængurkvennadeild. Viðvera aðstandenda, annarra en foreldra barna, á þessum deildum er aðeins heimil í sérstökum tilvikum og með leyfi stjórnenda.
4. Deildarstjóri eða vaktstjóri hefur heimild til að veita undanþágu frá þessum takmörkunum við sérstakar aðstæður.
Heimsóknartímar á Landspítala