Fyrirtækið ÞG verk ehf. steypir upp bílakjallara undir Sóleyjartorgi, samkvæmt samningi sem fulltrúi þess og heilbrigðisráðherra, fyrir hönd Nýs Landspítala ohf., undirrituðu á byggingarsvæði Landspítala við Hringbraut 13. júní 2023.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verks, undirrituðu samninginn um uppsteypu bílakjallarans undir Sóleyjartorgi sem verður við hliðina á meðferðarkjarnanum. Auk þess vottuðu samninginn þær Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS félags Íslands, og Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra á Íslandi (Diabetes Ísland). Verkið er liður í uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut.
Bílakjallarinn verður á tveimur hæðum ásamt tengigöngum. Hann verður sunnan megin við gamla Landspítalann, milli meðferðarkjarnans og fyrirhugaðrar byggingar dag-, göngu- og legudeilda Landspítala austan við torgið. Í húsinu verða um 180 bílastæði fyrir fólk sem þarf að sækja þjónustu spítalans.
Heildarflatarmál bygginganna er áætlað 7.500 fermetrar.
Upphæð samnings: 1.381.693.926 (91,4 % af kostnaðaráætlun - tölur án vsk og á verðlagi apríl 2023)
Willum Þór Þór:sson heilbrigðisráðherra:
„Það er ánægjulegt að ennþá bætist við byggingar sem eru á framkvæmdastigi í uppbyggingu við nýjan Landspítala. Þessi viðbót verður mikilvæg í heildarsamhengi því það skiptir öllu að öll þjónusta við sjúklinga og gesti sé á heimsmælikvarða og með góðri aðkomu þá er hægt að tryggja betur góða umgjörð. Þessi áfangi er hluti þeirrar vegferðar að allar byggingar hér á svæðinu myndi eina heild.“
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf:
„Enn einn áfanginn í uppbyggingunni við Hringbraut. Fljótlega verður boðin út uppsteypan á nær 18.000 fermetra rannsóknahúsi svo og styttist í að uppsteypu meðferðarkjarnans ljúki.“
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verk ehf:
„Við hjá ÞG verk erum sátt við að geta tekist á við samninginn og verkefni sem þetta. Við munum einhenda okkur í verkið og allt okkar starfsfólk á staðnum mun verða einhuga í að uppsteypan gangi vel. Við ljúkum þessu á næsta ári eins og áætlanir segja til um.“
Nýr Landspítali ohf