Jóhanna Ólafsdóttir hefur verið ráðin yfirljósmóðir á meðgönguvernd, fósturgreiningu og bráðaþjónustu kvennadeilda Landspítala og tekur við starfinu þann 1. september 2023.
Jóhanna lauk BSc prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og námi í ljósmóðurfræðum frá sama skóla árið 2012. Hún lauk námi til kennsluréttinda frá Kennaraháskóla Íslands árið 2007, meistaragráðu í ljósmóðurfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2019 og MLM gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á þjónandi forystu frá Háskólanum á Bifröst árið 2021. Hafa áherslur hennar ekki síst beinst að samspili milli velferðar starfsfólks, starfsánægju og árangurs skipulagsheilda.
Jóhanna starfaði í afleysingu sem yfirljósmóðir á meðgönguvernd, fósturgreiningu og bráðaþjónustu kvennadeilda haustið 2022 og hefur frá áramótum verið verkefnastjóri á barna- og kvennasviði Landspítala. Hún hefur fjölbreytta reynslu sem hjúkrunarfræðingur bæði á heilsugæslu og á sjúkrasviði, starfaði sem ljósmóðir á Landspítala á árunum 2012-2014 en eftir það sem ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi meðal annars sem deildarstjóri mæðraverndar og í afleysingum deildarstjóra fæðingardeildar. Hún hefur auk þess unnið við kennslu við raungreinadeild Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.